Jæja nú verða lufsurnar að fara að standa sig betur í
skrifunum...það er nú einum of rólegt hér inni fyrir minn smekk.
Hér kemur sem sagt smá bragarbót frá minni hálfu.
Það sem er helst að gerast í mínu lífi og ég get deild með
restinni af heiminum, er það að í skólanum mínum hafa
staðið yfir sk. Árdagar, en þá er hefðbundið skólastarf brotið upp
og margs konar skemmtilegir viðburðir í boði fyrir okkur
nemendur.
Ég
er búin að fara á námskeið í marókkóskri matargerð, fyrirlestur hjá
Sollu grænu, námskeið í hekli (já, já hlæiði bara, en ég þarf nú að
gera mig klára, ef ég skyldi nú einhvern tímann verða svo heppin að
eignast eigin barnabörn!! Málið snýst um að kunna að hekla
barnateppi...skiluru), leikhúsferð og námskeið í kertagerð,
ógislega töff!! 
Það verður sko huggulegt hjá mér þegar ég verð búin að elda og
dekka upp borð a la Marokko og kveikja á þessum fínu kertum, bara
spurning um gestalistann. Þetta verður eins huggulegt og hægt er að
ímynda sér að nokkur lufsa geti haft það...og erum við nú algjörir
sérfræðingar í huggulegheitum, það vitum við best
sjálfar!!
Jæja elskurnar fariði nú að sýna eitthvert lífsmark, ég sakna
ykkar alveg svaaaaakalega mikið, skiluru!! Yfir og út, frá
skólalufsu...
.html">
.html">
.html">
Hér var gerð tilraun til að setja inn mynd, tókst ekki! Þarf að
mennta mig betur í þessu!!
